Tónlistarkonan Adele er formlega skilin við barnsföður sinn Simon Konecki. Adele og Konecki tilkynntu um skilnað sinn í apríl 2019. Dómari skrifaði undir skilnaðarsáttmála á fimmtudaginn að því er fram kemur á vef Us Weekly.
Adele og Konecki komust að samkomulagi um skiptingu eigna í síðasta mánuði og var samkomulagið staðfest á dögunum. Skilnaðurinn fór fram á vinsamlegan hátt og þau Adele og Konecki sögð hafa sjálf miðlað málum í stað þess að fara í hart í dómsal. Hjónin fyrrverandi skrifuðu trúnaðarsamning í fyrra.
Adele og Konecki byrjuðu saman árið 2011 og eignuðust barn ári seinna. Þau gengu í hjónaband í maí 2018 en hjónabandið entist ekki lengi.