Fjöruverðlaunin veitt í 15. sinn

Verðlaunahafarnir fyrir utan Höfða.
Verðlaunahafarnir fyrir utan Höfða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, voru afhent við hátíðlega athöfn í dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Verðlaunin hlutu:

Í flokki fagurbókmennta:

Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur (Benedikt bókaútgáfa)

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:

Konur sem kjósa: Aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur (Sögufélag)

Í flokki barna- og unglingabókmennta:

Iðunn & afi pönk eftir Gerði Kristnýju (Mál og menning)

Þetta er í fimmtánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í sjöunda sinn frá því borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bauð höfunda velkomna í Höfða og streymt var af viðburðinum á samfélagsmiðlum. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu, að því er segir í tilkynningu. 

Kristín Svava tekur á móti verðlaununum.
Kristín Svava tekur á móti verðlaununum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Borgarstjóri ásamt Gerði Kristnýju.
Borgarstjóri ásamt Gerði Kristnýju. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rökstuðningur dómnefnda:

Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur (Benedikt bókaútgáfa)

Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur er ljóðabálkur sem geymir afar frumlega endurvinnslu á ritinu Íslenskar ljósmæður sem kom út á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær hundrað ljósmæður sem þar segir frá ganga í endurnýjun lífdaga í ljóðum Kristínar Svövu. Það er sem opnist gátt inn í horfinn tíma þaðan sem streyma lýsingar af hetjudáðum þessara ljósmæðra sem létu hvorki ófærð né veðurofsa hamla för sinni. Enn fremur er hin góða, fórnfúsa kona dregin mjög skýrum dráttum. Kristín Svava minnir okkur á hvaðan við komum og við hvað fólk mátti stríða í þessu landi, ekki síst konur. Hún sækir í orðfæri fyrrnefndrar bókar og finnur því nýstárlegan búning. Þessi meðferð á efninu er afar vel heppnuð og skilar sér í margslungnum og mögnuðum texta.

Konur sem kjósa: Aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur (Sögufélag)

Konur sem kjósa er aldarsaga íslenskra kvenna sem fullgildra borgara. Í gegnum ellefu sneiðmyndir af íslensku samfélagi, afmarkaðar við eitt kosningaár á hverjum áratug frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt, fær lesandinn djúpa og marglaga innsýn í veröld íslenskra kvenna.  Höfundar skyggnast bak við mýtuna um að íslenskar konur séu fegurstar og sjálfstæðastar allra kvenna og taka til umfjöllunar hvernig lagalegt og félagslegt jafnrétti kynjanna þróaðist á Íslandi. Fjallað er um hvernig konur sigruðust á þeim hindrunum sem blöstu við, til dæmis baráttuna um launajafnrétti, lífeyri eða aðgengi að salernisaðstöðu á vinnustöðum. Í þessari mikilvægu bók um sögu íslenskra kvenna stígur fram margradda kór sem er vissulega ekki sammála um allt, en er þó samstíga í baráttunni fyrir iðkun borgararéttinda.

Iðunn & afi pönk eftir Gerði Kristnýju (Mál og menning)

Iðunn & afi pönk lýsir veröld ellefu ára stelpu í Mosfellsbæ. Atburðarásin hverfist um afa hennar, dularfullt reiðhjólshvarf og grunsamlegar stelpur í hverfinu. Ekki er allt sem sýnist, ekki pönkið heldur. Trú afa á frelsi og umburðalyndi fólks gagnvart sjálfu sér og öðrum, eflir Iðunni og á erindi við lesendur. Gerður Kristný skrifar af leikandi húmor, með skáldlegri hrynjandi og smitandi ást á tungumálinu.

Eftirfarandi konur sitja í dómnefnd Fjöruverðlaunanna 2021:

Fagurbókmenntir:

Elín Björk Jóhannsdóttir bókmenntafræðingur

Jóna Guðbjörg Torfadóttir framhaldsskólakennari

Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur

Fræðibækur og rit almenns eðlis:

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur

Sóley Björk Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og blaðamaður

Sigrún Helga Lund tölfræðingur

Barna- og unglingabókmenntir:

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor í íslensku

Guðrún Jóhannsdóttir bókmenntafræðingur

Hildur Ýr Ísberg, íslensku- og bókmenntafræðingur

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú einbeitir þér að skriffinsku og fjármálum í dag, eins og skuldum, tryggingamálum, lánum og erfðamálum. Sýndu hugrekki og vertu óhefðbundinn, nýjungagjarn og sérstakur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú einbeitir þér að skriffinsku og fjármálum í dag, eins og skuldum, tryggingamálum, lánum og erfðamálum. Sýndu hugrekki og vertu óhefðbundinn, nýjungagjarn og sérstakur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar