Hvít-Rússar þurfa að gera endurbætur á laginu sem þeir sendu inn í Eurovision-söngvakeppnina í vikunni. Samkvæmt tilkynningu frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva þykir lagið ógna ópólitískum grundvelli keppninnar og má lagið ekki standa óbreytt í keppninni.
Lagið ber titilinn Ya Nauchu Tebya eða Ég skal kenna þér og er flutt af Galasy ZMesta.
Í tilkynningunni kemur fram að EBU telji að standi lagið óbreytt geti það haft slæm áhrif á orðspor keppninnar. Búið sé að láta ríkissjónvarpið BTRC í Hvíta-Rússlandi vita af því að lagið megi ekki vera í keppninni og óskað eftir því að lagið verði lagfært eða annað lag sem fellur að reglum keppninnar verði sent í keppnina.
Reglur Eurovision kveða á um að textar, ræður eða merki í atriðum keppenda megi ekki vera pólitísk eða auglýsing.
Ef Hvít-Rússar gera ekki endurbætur á laginu eða senda inn nýtt mega þeir ekki taka þátt í keppninni í Rotterdam í ár.