„Voru sem einn andi“

Stilla úr Er ást, nærmynd af brúðkaupsmynd Þorvaldar Þorsteinssonar og …
Stilla úr Er ást, nærmynd af brúðkaupsmynd Þorvaldar Þorsteinssonar og Helenu Jónsdóttur. Þorvaldur lést árið 2013, aðeins 52 ára.

Helena Jónsdóttir, kvikmyndaleikstjóri og danshöfundur, og eiginmaður hennar, Þorvaldur Þorsteinsson, skáld og myndlistarmaður sem lést langt fyrir aldur fram árið 2013, eru efni heimildarmyndarinnar Er ást eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur sem hlaut áhorfendaverðlaun heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborgar í fyrrahaust en dómnefnd veitti verðlaunin sökum sóttvarnasjónarmiða. Sýningar á myndinni hefjast í dag í Bíó Paradís en auk almennra sýninga þar í mars verður ein sýning haldin í Sambíóinu á Akureyri, í samstarfi við Listasafnið á Akureyri, 19. mars.

Í umsögn dómnefndar Skjaldborgar 2020 segir m.a. að höfundur nálgist viðkvæmt viðfangsefni af mikilli næmni og takist að gera úr áhrifamikið verk. Er ást sé einlæg og hjartnæm mynd um ástina sem minni fólk á að lifa í augnablikinu og vera þakklátt fyrir hvert andartak. Titillinn er sóttur í frasa sem Þorvaldi var tamur. „Er ást,“ sagði hann og Helena svaraði að bragði „alltaf“.

Í myndinni er ást þeirra hjóna og mikill missir Helenu og sorg þungamiðjan en einnig sköpunargleðin sem hvarf henni við andlát Þorvalds en birtist henni svo óvænt aftur. Þá er einnig fjallað um það markmið hennar að koma arfleifð Þorvalds í örugga höfn. „Þetta er eins og rússíbanaferð sem hefur hvorki upphaf né endi,“ segir Helena í byrjun myndar um sorgina og sorgarferlið en í myndinni er líka minnt á mikilvægi þess að þakka fyrir það sem maður hefur og fagna lífinu.

Kristín Andrea Þórðardóttir leikstjóri.
Kristín Andrea Þórðardóttir leikstjóri. mbl.is/Árni Sæberg

Vekur upp sterkar tilfinningar

Eins og gefur að skilja er myndin harmþrungin og er Kristín spurð að því hvort áhorfendur hafi grátið á frumsýningu hennar á Skjaldborg í fyrra. „Jú, myndin vekur upp sterkar tilfinningar. Sorgin er hluti af upplifunarheimi allra og nokkuð sem ég held að megi fjalla meira um í samfélaginu,“ svarar hún. Kristín segir myndina ekki portrett af listamanni heldur mynd um líf Helenu eftir fráfall Þorvaldar. Undirliggjandi frásögn er ástarsaga þeirra hjóna. „Nálgun mín var í rauninni að segja mannlega sögu,“ segir Kristín.

–Hvernig tengist þú Þorvaldi og Helenu?

„Við Þorvaldur kynntumst árið 2007 í gegnum sameiginlegan vin. Hann var svo áhugasamur um allt fólk, hvað aðrir væru að gera og við urðum strax vinir. Ég kynntist Helenu fljótlega í kjölfarið um þetta leyti, 2007 til '08, þegar ég var að aðstoða hann við að skipuleggja námskeið í skapandi skrifum sem hann hélt reglulega. Eftir að hann lést urðum við Helena enn nánari og í rauninni fæddist hugmyndin að myndinni þegar honum var gert hátt undir höfði tveimur árum eftir andlátið á Listahátíð í Reykjavík árið 2015. Þá var sýning opnuð á nýlegum verkum hans í Hverfisgalleríi og sama dag voru haldnir tónleikar í Gamla bíói með lagabálki eftir hann sem Skúli Sverrisson og Megas höfðu útsett og heitir Ósómaljóð. Skúli hafði þá fengið Helenu til að sjá um myndefni sem var varpað á vegg fyrir aftan hljómsveitina það kvöld. Við vorum þarna tvær uppi í ljósabúri og þar rann upp fyrir mér hversu mikil ábyrgð væri skilin eftir hjá henni, að halda arfleifð hans og nafni á lofti. Hann var svo fjölhæfur listamaður á svo mörgum sviðum,“ segir Kristín. Vinna Helenu við það sé heilmikið starf og utanumhald.

Mjög erfið á köflum

–Þú þekktir þau hjón persónulega, var ekki erfitt fyrir þig að gera þessa mynd?

„Jú, þetta er var allt í bland, sárt og sætt, en ég hefði aldrei viljað missa af þessum tíma með Helenu. Þetta var ótrúlega falleg vegferð hjá okkur þótt hún hafi verið erfið á köflum,“ svarar Kristín. Kristín hafi meðal annars velt fyrir sér, þar sem hún beindi myndavélinni að Helenu, hvort hún væri nógu góð vinkona. Hún hafi því stundum verið tvístígandi við gerð myndarinnar.

En hvaða áhrif heldur hún að vinskapurinn hafi haft á nálgun hennar á efnið? „Eitt af því sem heillaði mig við að segja þessa sögu var þeirra einstaka samband sem ég vissi að væri einstakt áður en við fórum af stað en gerði mér svo enn betur grein fyrir. Maður finnur kannski ekki oft svona rosalega sterka tengingu milli tveggja aðila sem nærast á lífskrafti hvor annars. Mér fannst það heillandi að fá að kynnast þeirri sögu betur þannig að nálgunin kemur svolítið út frá því að ég vissi hvað þau voru rosalega náin, að þau voru sem einn andi,“ svarar Kristín.

–Og titill myndarinnar bendir til þess að ástin sé þungamiðjan í henni?

„Já, einmitt, af því að í rauninni er sorgin afleiðing af ástinni. Hún er í rauninni grunnurinn að sögunni.“

Þorvaldur Þorsteinsson og Helena Jónsdóttir á frumsýningu í Borgarleikhúsinu árið …
Þorvaldur Þorsteinsson og Helena Jónsdóttir á frumsýningu í Borgarleikhúsinu árið 2005. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vildi ná því besta fram í fólki

–Nú veit ég að Þorvaldur var dáður og elskaður, bæði sem listamaður og manneskja, og hann var líka mjög sérstakur maður með opinn huga og sérstaka sýn á lífið og tilveruna ...

„Já og hann náði til svo margra, meðal annars með kennslu, og lagði svo mikla ást í að ná fram því besta í fólki. Ég held til dæmis að þessi námskeið í skapandi skrifum hafi kveikt neista innra með svo mörgum,“ svarar Kristín. Þorvaldur hafi líka verið með mjög sterka sýn á hvað væri hægt að gera öðruvísi í menntamálum og verið fullur af eldmóði og ástríðu hvað þá hugmyndafræði varðaði.

–Hvernig heldurðu að Þorvaldi hefði litist á að þessi mynd væri gerð um Helenu og hann?

„Ég held að hann hafi alveg verið með í þessu ferli,“ svarar Kristín og nefnir að vídeóupptökur frá Los Angeles, þar sem Þorvaldur og Helena bjuggu um tíma, hafi óvænt fundist eftir mikla leit. „Stundum trúir maður á örlög eða hjálp frá öðrum víddum,“ segir Kristín kímin.

Snúið út af Covid

Kristín er að lokum spurð út í sýningar á myndinni í öðrum löndum og segist hún vera að sækja um að sýna á hinum ýmsu hátíðum. „Landslagið í hátíðaheiminum er einstaklega erfitt um þessar mundir. Í þessum Covid-faraldri hafa sumar hátíðir farið í pásur, aðrar minnkað umfangið og orðið meira á netinu eða blanda af hvoru tveggja,“ segir Kristín. „En ég hef fengið viðbrögð frá erlendum áhorfendum sem hafa verið hugfangnir án þess að þekkja nokkuð til Helenu né Þorvaldar, þeirra listar eða listakreðsunnar á Íslandi svo ég trúi því að myndin geti ferðast utan landsteinanna.“

Hér má sjá stiklu myndarinnar:

Er ást (Eng. title: Resonance) from Kristin Andrea Thordardottir on Vimeo.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson