Framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var frumflutt á RÚV nú í kvöld, en það eru Daði og Gagnamagnið sem koma til með að keppa fyrir Íslands hönd með laginu 10 Years (10 ár).
Lagið fjallar um 10 ára samband Daða og Árnýjar konu hans. Auk Daða og Gagnamagnsins syngja börn í kórastarfi í Langholtskirkju með.
Hægt er að hlusta á lagið í spilaranum hér fyrir neðan.