Ein skærasta raunveruleikastjarna landsins Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Bassi Maraj, lét Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra fá það óþvegið á Twitter í gær.
Bassi byrjaði að skrifa á Twitter að hann væri svo hugmyndaríkur að hann ætti að gera hugmyndir fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Bjarni, formaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði tístinu og sagði að allar hugmyndir væru vel þegnar.
Þá svaraði Bassi: „Hér er hugmynd ... hvar er nýja stjórnaskráin? With ya dumb ass face you aint eating but i swear u got some bum ass taste !? Og hvernig væri að redda mér reikning í panama with your scammin ass allavegana nota peninginn sem þú ert að scama í að kaupa handa mer burkin“.
Hér er hugmynd... hvar er nýja stjórnaskràinn? With ya dumb ass face you aint eating but i swear u got some bum ass taste !? Og hvernig væri að redda mér reikning í panama with your scammin ass allavegana nota peninginn sem þú ert að scama i að kaupa handa mer burkin 😏
— bassi maraj (@bassimaraj) March 25, 2021
Bjarni hefur ekki svarað seinna tísti Bassa, en tístið hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum á Twitter. Þegar þetta er skrifað hafa 50 endurtíst færslunni, 40 birt hana og skrifað athugasemd við og 642 hafa smellt hjarta á tístið.
Bassi hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn undanfarin misseri en hann var í annarri seríu af raunveruleikaþáttunum Patrekur Jamie: Æði 2. Þá gaf Bassi nýverið út sitt fyrsta lag sem hefur slegið í gegn á streymisveitunni Spotify.
Grínið hjá Bassa virðist þó ekki hafa verið alvarlegra en það að hann klippti saman mynd af sér og Bjarna á Esjunni og skrifaði „Lovers“ eða „Elskhugar“.
Lovers pic.twitter.com/04c0fD3n4l
— bassi maraj (@bassimaraj) March 25, 2021