Sóttkví er stutt sjónvarpsmynd eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur sem gerist í Reykjavík í mars 2020, í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins. Myndin er um hálf klukkustund að lengd og er á dagskrá Ríkissjónvarpsins kl. 20.05 á páskadagskvöld.
Í myndinni er hermt af vinkonunum Lóu, Heklu og Fjólu sem þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví og sækja styrk og félagsskap hver til annarrar með reglulegum fjarfundum á meðan.
Auk innilokunarinnar er hver og ein að eiga við flóknar og á tíðum skoplegar aðstæður í einkalífi sínu sem magnast upp við einangrun og álag sóttkvíarinnar.
Aðalhlutverk leika Elma Lísa Gunnarsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Hilmar Guðjónsson en leikstjóri er Reynir Lyngdal.