Leikstjórinn Woody Allen neitar enn og aftur að hafa brotið kynferðislega á dóttur sinni, Dylan Farrow, þegar hún var sjö ára. Viðtal sem Allen veitti bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS í sumar birtist fyrst um helgina.
„Hún var gott barn,“ sagði Allen um Dylan Farrow í viðtalinu. „Ég held að hún haldi þetta. Ég trúi því ekki að hún sé að búa þetta til. Hún er ekki að ljúga. Ég held að hún trúi þessu.“
Allen sagði að það væri ekki hægt að túlka neitt sem hann gerði með dóttur sinni sem kynferðislegt ofbeldi. Í viðtalinu lýsti hann ásökunum sem fjarstæðukenndum. Af hverju hefði hann átt að haga sér svona þá 57 ára gamall og aldrei verið sakaður um neitt?
Dylan Farrow, sem var ættleidd af Allen og þáverandi konu hans, Miu Farrow, hefur greint frá því að hann hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi þegar hún var sjö ára árið 1992. Ásakanir gegn Allen komu fyrst fram fyrir tæpum 30 árum en urðu aftur áberandi fyrir nokkrum árum.
Margir leikarar hafa á undanförnum árum lýst yfir eftirsjá eftir að hafa unnið með Allen. Leikstjórinn telur stjörnurnar heimskar, þær meini vel en segir yfirlýsingarnar heimskulegar. „Það eina sem þau gera er að ofsækja saklausa manneskju og viðhalda þessari lygi.“
Viðtalið kemur í kjölfar heimildaþátta um Miu Farrow og Woody Allen. Viðtalið var tekið upp í sumar en var frestað, sem kom Allen í opna skjöldu, auk þess sem Allen, sem veitir afar sjaldan viðtal, fór í viðtalið með þeim formerkjum að ræða feril sinn og nýja bók.