Stjörnufréttir Evu Ruzu:
William prins er kominn með annan titil undir beltið. Hann sló Dwayne Johnson út, Jason Statham, Pitbull, haldið ykkur fast, Vladimír Pútín, og fleiri sköllótta menn út.
Hann hefur verið valinn kynþokkafyllsti sköllótti karlmaður í heimi.
Allt er nú til, en samkvæmt rannsókn í gegnum Google hefur William verið sagður kynþokkafullur 17,6 milljón sinnum á bloggum, fréttamiðlum og ýmsum síðum.
Dwayne Johnson, eða the Rock, hefur þetta um málið að segja: „How in the cinnamon toast fuck does this happen.“ Hann krefst þess svo að það verði endurtalið.
How in the cinnamon toast f*ck does this happen - when Larry David clearly has a pulse?!?!#demandingrecount ☑️😊 https://t.co/ztO6ND4vk9
— Dwayne Johnson (@TheRock) March 27, 2021
Frétt frá: People.