Leikkonan Mia Farrow hefur opnað sig um andlát þriggja barna sinna, þeirra Tam, Lark og Thaddeus. Farrow ákvað að opna sig í langri færslu á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem hún segir að ljótur orðrómur hafi verið á kreiki um andlát þeirra.
Dóttir hennar Tam lést 17 ára að aldri, Lark lést 35 ára að aldri og sonurinn Thaddeus lést 29 ára gamall.
„Sem móðir fjórtán barna, þá skiptir fjölskyldan mig öllu máli. Þótt ég hafi valið starf sem setur mig í sviðsljósið þá hafa börn mín valið að gera það ekki,“ sagði Farrow. Hún sagði að hún veldi vel það sem hún setti á samfélagsmiðla til að virða óskir þeirra.
„Mín ástkæra Tam lést 17 ára að aldri eftir að hafa tekið of stóran skammt af uppáskrifuðum verkjalyfjum í misgáningi. Verkjalyf sem hún fékk uppáskrifuð vegna mígrenis og hjartagalla,“ skrifaði Farrow.
Regarding my children pic.twitter.com/ApiSeBFx9C
— Mia Farrow (@MiaFarrow) April 1, 2021
Dóttir hennar Lark lést árið 2008. „Hún lést 35 ára vegna HIV, sem hún smitaðist af frá fyrri maka. Þrátt fyrir veikindi sín lifði hún innihaldsríku lífi með börnum sínum og maka til margra ára. Veikindin tóku yfir líf hennar og hún lést skyndilega á spítalanum um jólin, í fangi maka síns,“ skrifaði Farrow.
Sonur hennar Thaddeus svipti sig lífi 29 ára gamall eftir að slitnaði upp úr ástarsambandi.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218.