Leikarinn Regé-Jean Page verður ekki með í annarri þáttaröð af hinum geysivinsælu Bridgerton-þáttum á Netflix. Page og mótleikkona hans Phoebe Dynevor slógu í gegn í eldheitum ástarsenum þegar þættirnir voru frumsýndir í lok síðasta árs.
Framleiðendur þáttanna tilkynntu brotthvarf Page um páskana. Sjálfur sagði Page í viðtali við vef Variety að hann hefði bara átt að leika í einni þáttaröð, sem honum fannst spennandi. „Ég fæ að koma inn, gera mitt og svo heldur Bridgerton-fjölskyldan áfram,“ sagði Page um samtal sem hann átti við framleiðendur snemma í ferlinu.
Page er með mörg járn í eldinum og þarf ekki að kvarta þrátt fyrir að leika ekki í næstu þáttaröð af Bridgerton. Eins og margir breskir leikarar sem gera það gott er hann orðaður við hlutverk njósnara hennar hátignar James Bond.