Leikarinn Walter Olkewicz er látinn 72 ára að aldri. Olkewicz var hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk í þáttunum Seinfeld, Twin Peaks og fleiri gamanþáttum.
Sonur hans, Zak Olkewicz, staðfesti andlát hans og sagði hann hafa látist úr þrálátum sýkingum. Hann lést í Reseda í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Olkewicz hóf feril sinn árið 1970 og starfaði allt fram til ársins 2017 þegar hann veiktist illa eftir aðgerð á hné.
„Hann var góður maður sem hafði ástríðu fyrir sköpun og listum og yfirfærði þessa ást sína á allt. Hann gaf mér þá gjöf í vöggugjöf og ég hlakka til að gefa barnabörnunum sem hann elskaði svo heitt þá gjöf líka,“ sagði Zak Olkewicz í tilkynningu til fjölmiðla.
Olkewicz var fæddur 14. maí 1948 í Bayonne í New Jersey. Hann lætur eftir sig tvo syni.