Streymisveitan Netflix hefur pantað tvær seríur í viðbót af þáttunum Bridgerton sem slógu heldur betur í gegn á streymisveitunni um jólin. Fyrsta serían kom inn á Netflix 26. desember og gerði allt vitlaust og snemma á þessu ári var ákveðið að önnur sería yrði að veruleika.
Þættirnir koma úr framleiðslu höfundarins Shondu Rhimes sem er höfundur þátta á borð við Grey's Anatomy, How to Get Away With Murder og Scandal. Þeir byggjast á samnefndri bókaseríu eftir Juliu Quinn.
Mikilvægt hlutverk í þáttunum spilar slúðurdrottningin Lady Whistledown en tilkynnt var um 3. og 4. seríuna í hennar nafni. „Svo virðist sem við höfum ansi sérstaka tilkynningu í höndunum. Sería þrjú og fjögur verða gerðar af Bridgerton. Þessi höfundur þarf að fara að kaupa meira blek,“ segir í tilkynningunni.
Dearest readers, this author brings a most exciting announcement... pic.twitter.com/sV0QiYcn8z
— Bridgerton (@bridgerton) April 13, 2021