Morgunkaffi með Atla og O’Herlihy

Atli Örvarsson tónskáld.
Atli Örvarsson tónskáld. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, ÚTÓN, tekur þátt í norrænni viðburðaseríu í streymi sem nefnist Coffee with the Nordics, undir merkjum NOMEX og fer einn slíkur viðburður fram á morgun, 15. apríl, kl. 8.

Markmið seríunnar er að varpa ljósi á þá vinnu sem fram fer á bak við tjöldin í tónlistarbransanum, að því er fram kemur í tilkynningu en NOMEX er samstarfsvettvangur norrænu tónlistarútflutningsskrifstofanna. Segir að hlutverk þeirra flestra sé ekki bara að kynna norræna tónlist á alþjóðavísu heldur jafnframt styðja við uppbyggingu á innviðum tónlistarbransans í hverju landi fyrir sig. Aðilar að NOMEX eru auk ÚTÓN, Music Export Denmark, Music Finland, Music Norway og Export Music Sweden.


Viðburðurinn á morgun felst í því að ÚTÓN mun bjóða til sín góðum gestum og fjalla um tónlist í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hrefna Helgadóttir, nýráðinn verkefnastjóri kynningarmála hjá ÚTÓN, mun ræða við Atla Örvarsson og Colm O’Herlihy, stofnendur INNI Music, en INNI Music einbeitir sér að því að forleggja (e. publishing) fyrir tónskáld og pródúsenta sem í tilkynningu er sagt lykilskref í því ferli að koma verkum í umferð af þessu tagi, að skapa tækifæri við tónsetningu eða stök lög (e. sync) og kvikmyndatónlist (e. score).

Colm O’Herlihy.
Colm O’Herlihy.



Vaxandi tekjulind


INNI Music var stofnað fyrir tveimur árum og er fyrsta íslenska fyrirtækið sem sérhæfir sig á þessu sviði, sem tónlistarforleggjari og á m.a. í samstarfi við tónlistarfólk á borð við Amiinu, Sin Fang, Skúla Sverrisson, Kára Einarsson, Ayiu, múm og Úlf Hansson. „Hljóðsetning af þessu tagi er ekki bara ört vaxandi tekjulind fyrir tónlistarfólk, sem hefur margt hvert misst af tekjumöguleikum vegna Covid-faraldursins, en íslenskt tónlistarfólk sem semur kvikmyndatónlist sérstaklega, hefur skarað fram úr á þessu sviði á heimsmælikvarða,“ segir í tilkynningunni frá ÚTÓN og að þar megi helst nefna Hildi Guðnadóttur, Ólaf Arnalds og Jóhann heitinn Jóhannsson sem hafi unnið til verðlauna á borð við Óskarinn, Golden Globe, Grammy og BAFTA.


Atli Örvarsson, sem tekur þátt í viðburðinum á morgun, er líka margverðlaunaður, hefur fjórum sinnum unnið ASCAP-verðlaun fyrir störf sín í sjónvarpsþáttum og unnið að tónlist fyrir yfir 40 kvikmyndir. Hann starfaði lengi í Hollywood með Hans Zimmer, einu þekktasta kvikmyndatónskáldi heims, og Atli hefur auk þess verið leiðandi í Sinfonia Nord-verkefninu sem sérhæfir sig í kvikmyndatónlist (e. score) og hefur aðsetur í Hofi á Akureyri.

Ókeypis aðgangur 

Þeir sem hafa áhuga á því að fræðast um hvernig koma megi tónlist í sjónvarpsefni og kvikmyndir eru hvattir til að mæta á vef-fyrirlestur NOMEX: Morning Coffee With The Nordics – Music for TV & Film á morgun kl. 8 og hlusta á samtal þeirra Hrefnu, Atla og O’Herlihy. Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn fyrir alla á Zoom og er hægt að skrá sig og finna hlekk á fyrirlesturinn á Facebook-síðu viðburðarins sem finna má hér

Hrefna Helgadóttir.
Hrefna Helgadóttir. Ljósmynd/Sunna Ben
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar