Youtubestjarnan og bardagakappinn Jake Paul neitar ásökunum tiktokstjörnunnar Justine Paradise. Í síðustu viku sakaði hún hann um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi í júlí 2019. Paul segir ásakanirnar rangar og að hún hafi opnað sig um málið á þessum tímapunkti til að koma höggi á hann.
Í tilkynningu á Twitter segir Paul að hann hyggist fara í meiðyrðamál gegn henni.
„Aftur, þessi manneskja er að nota athyglina sem hún fær af myndum og myndböndum á samfélagsmiðlum til að vekja athygli á erótískri síðu sinni og innkaupalista á Amazon. Þessar ásakanir koma á hentugum tíma fyrir hana, næstum því tveimur árum eftir að hið meinta atvik átti sér stað og í vikunni fyrir bardagann minn,“ skrifar Paul.
Paul mætir UFC-kappanum Ben Askren á laugardaginn.
Hann þvertekur fyrir að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Paradise og segist virða konur og mæður meira en allt. „Ég hef aldrei komið við stelpu án hennar samþykkis,“ sagði Paul.
— Jake Paul (@jakepaul) April 13, 2021