Hafnaboltakappinn fyrrverandi Alex Rodriguez og leik- og söngkonan Jennifer Lopez eru hætt saman og búin að slíta trúlofun sinni. Stjörnurnar greindu frá ákvörðun sinni í fréttatilkynningu á vef Today.
Stjörnuparið byrjaði saman árið 2017 og tveimur árum seinna bað Rodriguez Lopez um að giftast sér. Í tilkynningu sem þau sendu frá sér sögðust þau hafa áttað sig á að því að þau væru betri saman sem vinir og hlakka til þess. Þau ætla að halda áfram að vinna saman og styðja hvort annað. Að lokum óskuðu þau hvort öðru alls hins besta. Þau ætla sér ekki að segja meira af virðingu við börn sín og þakka fyrir hlýhug.
Fréttir af sambandslitum þeirra bárust í mars en þá höfðu þau ekki slitið trúlofun sinni. Fram kom í fréttum að þau væru að vinna sig í gegnum erfiðleika.