Leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. Eiginmaður hennar, leikarinn Damian Lewis, greindi frá andlátinu á Twitter í dag. Hún lést úr krabbameini.
„Það hryggir mig að tilkynna að eftir hetjulega baráttu við krabbamein lést fallega sterka Helen McCrory heima í faðmi fjölskyldu og vina,“ skrifaði Lewis.
McCrory var hvað þekktust fyrir að fara með hlutverk í þáttunum Peaky Blinders og hlutverk Narcissu Malfoy í þremur Harry Potter-kvikmyndum.
— Damian Lewis (@lewis_damian) April 16, 2021