Raunveruleikastjarnan Kelly Osbourne, dóttir Ozzys og Sharon Osbourne, féll nýlega eftir tæplega fjögurra ára edrúmennsku. Osbourne gerði hreint fyrir sínum dyrum á Instagram og sagðist vera orðin edrú aftur.
„Ég féll. Ekki stolt af því,“ sagði Osbourne í sögu á Instagram á mánudaginn. Því næst sagðist hún vera komin aftur á beinu brautina. Hún ætlar að greina betur frá því sem gekk á seinna í vikunni.
„Ég vildi bara láta ykkur vita að ég er edrú í dag og ég verð edrú á morgun. En ég hef lært að þetta er í alvöru bara einn dagur í einu og ég vildi segja ykkur sannleikann af því að mig langar aldrei að ljúga að ykkur.“
Osbourne greindi frá því í ágúst í fyrra að hún hefði verið edrú í þrjú ár.