Guðmundur Jörundsson fatahönnuður var beittur kynferðislegu ofbeldi þegar hann var barn. Hann greinir frá þessu á Twitter í ljósi umræðna síðustu daga. Guðmundur segist hafa verið lengi að átta sig á hegðunarmynstri sínu og hvaðan það kæmi. Hann vonar að saga hans geti hjálpað öðrum strákum að axla ábyrgð.
„11 ára gamall var ég beittur kynferðisofbeldi, það ásamt öðrum áföllum þróaði mig smám saman úr þolanda yfir í geranda ofbeldis. Ég hélt lengi að afbrýðisemin og brjálæðisköstin mín væru ekki andlegt ofbeldi en leitaði mér loks hjálpar fyrir nokkrum árum og er frjáls í dag,“ skrifaði Guðmundur á Twitter.
„Ég hef tjáð mig um þetta áður en langar í ljósi umræðna að vekja athygli á því aftur og vona að það geti hjálpað fleiri strákum að axla ábyrgð og leita sér aðstoðar. Þegar ég áttaði mig loks á hegðunarmynstrinu og skildi hvaðan það kom hvarf þetta ótrúlega fljótt.“
11 ára gamall var ég beittur kynferðisofbeldi, það ásamt öðrum áfölllum þróaði mig smám saman úr þolanda yfir í geranda ofbeldis. Ég hélt lengi að afbrýðisemin og brjálæðisköstin mín væru ekki andlegt ofbeldi en leitaði mér loks hjálpar fyrir nokkrum árum og er frjáls í dag.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) May 5, 2021
1/2