Tónlistarkonan Britney Spears mun aðeins tala fyrir því að faðir hennar, Jamie Spears, hafi enga stjórn yfir henni þegar hún kemur fyrir dómara í júní næstkomandi. Hún mun ekki óska eftir því að fá sjálfstæði sitt aftur.
Heimildamenn TMZ segja að Britney líði ekki eins og hún hafi ekki neina stjórn á lífi sínu. „Hún hefur 99% af því frelsi sem hún myndi hafa ef hún væri ekki með lögráðamann og það eina sem hún má ekki gera eru klikkaðir hlutir eins og að að kaupa þrjá bíla í einu,“ sagði heimildamaðurinn.
Britney má til dæmis ferðast og fer reglulega til Havaí.
Það eina sem truflar Britney er faðir hennar. Heimildir TMZ herma að þau hafi ekki talast við í langan tíma. Hún hafi verið reið honum í langan tíma vegna viðskipta sem hann hefur átt í nafni hennar.