Fyrirsætan Sydney Chase, konan sem segist hafa átt í ástarsambandi við Tristan Thompson í vetur, er komin með lögfræðing eftir að körfuboltakappinn sakaði hana um lygar. Thompson er enn og aftur sakaður um að hafa haldið framhjá barnsmóður sinni, raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian.
Fram kemur á vef Page Six að fyrirsætan hafi fengið kvenréttindalögmanninn Gloriu Allred til liðs við sig. Tók hún á það ráð eftir að lögfræðiteymi Thompsons sakaði hana um lygar. Chase greindi frá meintu sambandi þeirra fyrir nokkrum vikum.
„Það er augljóst að þú ert lygari,“ stóð í formlegu bréfi til Chase frá lögfræðingi Thompsons. „Sú staðhæfing að þú hafir átt í sambandi við herra Thompson er skáldskapur.“