Natan Dagur, keppandi í norska Voice, mun syngja lagið Back to Black, með Amy Winehouse þegar hann stígur á svið í kvöld.
Átta manna úrslit fara fram í kvöld og hefst útsendingin klukkan 18 á íslenskum tíma.
Núna eins og síðast kjósa áhorfendur og geta Íslendingar og aðrir utan Noregs kosið í gegnum vefsíðu TV2.no eftir að þátturinn hefst.
Hver og einn getur kosið þrisvar. Hægt er að fara inná www.tv2.no þar efst verður borði sem á stendur The Voice.
Þegar smellt er á borðann tengist kosningasvæði Voice þar sem hægt verður að velja Natan þrisvar.