Covid-19-smit hefur greinst hjá íslenska Eurovision-hópnum. Kom smitið fram í reglubundnum skimunum sem framkvæmar eru af mótshöldurum í Rotterdam. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU).
Viðkomandi er nú kominn í einangrun og aðrir í hópnum fara í sóttkví og PCR-skimun.
Íslenski hópurinn mun af þessum sökum ekki taka þátt í kynningu keppenda sem fram fer nú síðar í dag.