Daði Freyr Pétursson Eurovisionfari var í viðtali við bresku fréttastofu CNN sem kom út í dag. Í viðtalinu er farið yfir hvernig Eurovision var frestað í fyrra og hve mikil eftirvænting er til keppninnar nú.
Þar er keppnin sögð sú stærsta og sú skrýtnasta í heimi, sem heimurinn þarf á að halda sem aldrei fyrr.
Daði Freyr og föruneyti hans í Gagnamagninu munu sem þekkt er orðið ekki stíga á svið í Rotterdam annað kvöld þar sem einn meðlima hópsins reyndist smitaður af Covid-19 og er því stuðst við myndbandsupptöku af æfingu hópsins.
Upptakan er sem betur fer hin glæsilegasta eins og sjá mátti í seinna undanúrslitakvöldi Eurovision í gærkvöldi og skilaði Íslandi sæti í aðalkeppninni annað kvöld.
Í viðtalinu við CNN er Daði spurður út í lagið, 10 years, sem er óður til Árnýjar, eiginkonu Daða, og sambands þeirra. Hann er einnig inntur eftir tilfinningum sínum gagnvart áfallinu að fá ekki þrátt fyrir allt að stíga á svið í Rotterdam. Daði hefur áður beðist undan því að fólk spyrði hann linnulaust út í vonbrigðin.
Daði svaraði á þann veg að hann hefði auðvitað verið spenntur fyrir að fá að keppa á sviði þar sem hann hefur beðið lengi eftir því augnabliki, sem er lýst af öðrum keppendum sem algjörlega einstakri upplifun.
If everybody could stop asking me how sad we’re feeling, that would be nice.
— Daði Freyr 🥑 (@dadimakesmusic) May 21, 2021
Daði segir líðan Jóhanns í Gagnamagninu, sem er smitaður af Covid-19, vera góða og að hvorki hann né nokkur annar finni fyrir einkennum.
Rifjað er upp hversu sterkur keppandi Daði þótti í fyrra og hve vinsælt atriði hans var þá, lagið Think about Things. Daði þótti sigurstranglegastur keppenda.