Natan Dagur er kominn áfram í úrslitaþátt Voice í Noregi eftir frábæra frammistöðu í undanúrslitunum í kvöld ef marka má frétt af TV2.
Söng hann lagi All I Want með írsku hljómsveitinni Kodaline. Óhætt er að segja að Natan hafi sett lagið í nýjan búning en lagið er vart þekkjanlegt í flutningi hans frá því í kvöld.
Náði rödd Natans hæðum sem ekki hafa heyrst frá honum áður og sló hann dómarana algjörlega út af laginu.
Sjá má flutning Natans hér.