Þjóðhátíðarlagið 2021 var frumflutt í dag. Lagið ber titilinn Göngum í takt og er flytjandi og höfundur lagsins Hreimur Örn Heimisson.
Það fjallar um eftirvæntinguna sem að kraumar inn í manni þegar að maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir í drununum úr brekkunni þegar að þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð.
Hreimur fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem að söng með Hreim árið 2001 í Þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti 16 ára dóttur Hreims sem að syngur einnig í laginu.
Benedikt Brynleifsson spilar á trommur, Matthías Stefánsson á fiðlu, Pálmi Sigurhjartarson á harmonikku og Árni Þór Guðjónsson, Steini Bjarka, Benedikt Brynleifs og Vignir Snær mynda kórinn