Útgáfurisinn Universal hefur ákveðið að framleiða kvikmynd byggða á ævi söng- og leikkonunnar Cher en kvikmyndir byggðar á ævi söngvara hafa verið vinsælar síðustu ár líkt og kvikmyndirnar Bohemian Rapsody sem er byggð á ævi Freddie Mercury og Rocketman sem er byggð á ævi Sir Elton John.
Nú er röðin komin að dívunni og Íslandsvininum Cher sem varð 75 ára á dögunum en hún er sammála landsmönnum um gæði íslenska vatnsins þar sem hún stóð að útflutningi íslenska vatnsins fyrir fimm árum til Flint í Bandaríkjunum vegna blýeitrunar á drykkjarvatni bæjarbúa.
Fyrir nokkrum dögum birti söngkonan tíst á Twitter og samkvæmt því er hún í skýjunum með samningana. Goetzman Producing mun einnig kom að framleiðslu myndarinnar en þau framleiddu meðal annars söngleikjamyndina Mamma Mia! sem er byggð á lögum sænsku popphljómsveitarinnar Abba.
Ok Universal is Doing Biopic With My Friends JUDY CRAYMER,GARY GOETZMAN PRODUCING.
— Cher (@cher) May 19, 2021
THEYY PRODUCED
BOTH MAMMA MIA’S,&
MY DEAR DEAR Friend 4 YRS, & OSCAR WINNER..ERIC ROTH IS GOING 2 WRITE IT👻🎂‼️
FORREST GUMP
A STAR IS BORN
SUSPECT
TO NAME A FEW OF IS FILMS
Óskarsverðlaunahandritshöfundurinn Eric Roth mun skrifa handritið en hann er frægastur fyrir að hafa skrifað handritið að kvikmyndunum Forrest Gump og Star is Born.
Cher á sér stóran aðdáendahóp á Íslandi og það má reikna með að þau verði cher-staklega spennt að fylgjast með því hver mun sjá um að þýða og texta myndina.