Stórleikarinn Tom Cruise er kominn í sóttkví eftir að smit kom upp á tökustað nýjustu Mission Impossible-myndarinnar í Bretlandi. Frægt varð þegar Cruise hellti sér yfir samstarfsfólk sitt í desember vegna þess að það fór ekki eftir settum reglum.
Smit komu upp þegar leikarinn var í tökum á atriði sem á að gerast á næturklúbbi. Fjórir dansarar veiktust sem og tíu aðrir. Alls þurftu 60 að fara í tveggja vikna sóttkví vegna smitsins að því er fram kemur á vef The Sun. Dansararnir voru í innan við tveggja metra nálægð við Cruise.
Leikarinn er sagður hafa verið í sóttkví síðan á þriðjudaginn. „Tom er alveg brjálaður út af því sem gerðist, sérstaklega í ljósi ræðunnar sem hann hélt fyrir starfsfólkið í fyrra. Þetta hefur mikil áhrif á myndina og það þarf að vinna þetta upp þegar fólk kemur til baka,“ sagði heimildarmaður.