„Það var svo ótrúlega gaman hvað þau náðu að koma mér á óvart. Maðurinn minn lék þetta svo vel með,“ sagði tónlistarkonan Heiða Ólafs í viðtali við Ísland vaknar á K100 í morgun en hún var gæsuð með stæl um helgina, meðal annars af Kalla Bjarna og Simma Vill. Heiða og unnusti hennar, Helgi Páll Helgason, munu gifta sig eftir tæplega tvær vikur, þann. 24. júlí.
„Við erum að plana þetta með mjög stuttum fyrirvara. Þetta átti að vera næsta sumar en þegar Þórólfur aflétti öllu þá vorum við bara; æi, af hverju ekki bara núna?“ sagði Heiða, sem segir að gæsunin hafi verið afar vel heppnuð.
Sagðist hún hafa verið á leiðinni í allsherjar brúðkaupsstúss þegar bróðir hennar, mágkona og vinkona keyrðu í hlað ásamt Simma Vill og Kalla Bjarna sem söng svo með Heiðu dúett á leiðinni á kampavínskaffihús.
„Þær voru að taka afturlit til fortíðar,“ sagði Heiða og vísar í að það séu nú 16 ár síðan hún tók þátt í Idol stjörnuleit.
„Fólk kallaði mig svolítið lengi Heiðu Idol. Fjölskylda og vinir eru búnir að gera mikið grín að mér,“ sagði hún.
Heiða lýsti fjörinu í gæsuninni í viðtalinu en í henni var mikið sungið og hlegið, en hún segir að desíbelmælir hefði farið yfir um í teitinu.
„Ég var sett í pínulítinn búning og fékk slör í hárið. En þetta var blanda af „elegance“ og stuði,“ sagði Heiða.
Heiða deildi myndum úr gæsuninni vel heppnuðu á Instagram-síðu sinni.
Hlustaðu á allt viðtalið við Heiðu í spilaranum hér að neðan.