Selling Sunset-stjarnan Chrishell Stause og stofnandi fasteignasölunnar Oppenheim Group eru í sambandi. Stause vinnur fyrir Oppenheim Group og selur fasteignir í netflixþáttunum Selling Sunset.
Stause opinberaði sambandið á Instagram í gær þegar hún birti mynd af þeim saman við strendur Capri. „JLo-áhrifin,“ skrifaði Stause en hið hamingjusama par Jennifer Lopez og Ben Affleck er einnig á Capri um þessar mundir.
„Við Chrishell urðum nánir vinir og það hefur þróast út í samband. Mér þykir virkilega vænt um hana og við erum mjög hamingjusöm saman,“ sagði Oppenheim í viðtali við People.
Stause var áður gift leikaranum Justin Hartley en þau voru gift frá 2016 til 2018. Skilnaður þeirra olli miklu fjaðrafoki og var mikið fjallað um hann í fjölmiðlum.