Faldi áfengisneysluna og skammaðist sín

Kit Harington faldi áfengisneysluna fyrir sínu nánasta fólki áður en …
Kit Harington faldi áfengisneysluna fyrir sínu nánasta fólki áður en hann fór í meðferð. AFP

Breski leikarinn Kit Harington segist hafa falið fyrir sínum nánustu hversu mikið áfengi hann drakk. Það kom því mörgum í opna skjöldu þegar hann fór í meðferð í maí 2019, stuttu eftir að tökum á Game of Thrones lauk. 

Harington opnaði sig um alkóhólismann í viðtali í síðustu viku og sagðist vera ánægður með að hafa farið í meðferð. Um helgina sagði hann í viðtali við Sunday Times að hann hefði skammast sín mikið fyrir að vera háður áfengi og hann hefði upplifað margt sem hann væri enn að vinna úr. 

„Maður kemst á þann stað að manni líður eins og vondri manneskju, maður skammast sín og finnst engin leið vera út. Það er bara manneskjan sem þú ert. Og þegar maður er að verða edrú þarf maður að trúa að maður geti breyst,“ sagði Harington.

„Það var nokkuð sem ég hélt fast í þegar ég var í meðferð. Hugmyndin um að ég gæti gert þessa grundvallarbreytingu á því hver ég er og hvernig ég fer í gegnum lífið,“ sagði Harington.

„Ég get sagt það um mína fíkn, að ég faldi hana mjög, mjög vel og ég hélt þessu leyndarmáli vel földu. Þannig að það kom mörgum í lífi mínu á óvart, sem gerist örugglega í mörgum tilvikum held ég,“ sagði Harington.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að versla og eyða peningum í dag. Ef þú grefur djúpt finnur þú svör. Næstu vikur henta því vel til að gera upp gömul deilumál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að versla og eyða peningum í dag. Ef þú grefur djúpt finnur þú svör. Næstu vikur henta því vel til að gera upp gömul deilumál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover