One Tree Hill-stjarnan Sophia Bush og viðskiptamaðurinn Grant Hughes eru trúlofuð. Hughes fór á skeljarnar á bát úti á miðju Como-vatni á Ítalíu.
Bush og Hughes hafa verið í sambandi í rúmt ár. „Hún er mín uppáhaldsmanneskja að eilífu. Þetta er mitt eftirlæti. Og lífið sem við ætlum að eiga saman, því hún sagði já. Ég er svo spenntur fyrir að lifa lífinu með þér, elskan mín,“ skrifaði Hughes á Instagram.
Hughes kom leikkonunni á óvart með bónorðinu og hafði ráðið ljósmyndara til að taka mynd af þeim á bátnum úr fjarlægð.