Leikarinn Patrick Dempsey var orðinn óþolandi og hagaði sér illa á tökustað Grey's Anatomy þáttanna að því fram kemur í bók sem fjallar um það sem gerðist að tjaldabaki. Leikarinn hætti að leika lækninn Derek „McDreamy“ Shepherd í 11. þáttaröð þáttanna.
Bókin How to Save a Life: The Inside Story of Grey’s Anatomy eftir Lynette Rice segir frá 16 ára langri sögu þáttanna. Á vef The Hollywood Reporter er því lýst hvernig Dempsey hagaði sér á tökustað.
Framleiðandinn James D. Parriott lýsir því í bókinni hvernig slæm hegðun Dempsey hafi komið inn á borð mannauðsstjóra en tók fram að hann hafi ekki beitt kynferðislegu ofbeldi. Sumir leikarar hafi hins vegar fengið áfallastreituröskun vegna framferði hans á tökustað. Parriott var fengin til starfa aftur til þess að skrifa Dempsey út úr þáttunum.
Talsmenn framleiðslufyrirtækisins, sjónvarpsstöðvarinnar sem þættirnir eru sýndir á og Dempsey neituðu að tjá sig um innihald bókarinnar.
Parriott lýsir því hvernig höfundur þáttanna, Shonda Rhimes, lagði áherslu á að halda hinni fullkomnu ímynd sem hlutverki Dempsey fylgdi. Það var því ekki hægt að skrifa hann út úr þáttunum á hvaða hátt sem er.