Leikari úr Sex and the City látinn

Willie Garson.
Willie Garson. Ljósmynd/Wikipedia.org

Leikarinn Willie Garson, þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Stanford Blatch í þáttunum Sex and the City, eða Beðmál í borginni, er látinn, 57 ára að aldri.

Sonur hans greindi frá þessu.

Í þáttunum lék Garson vin Charrie Bradshaw, sem Sarah Jessica Parker lék.

Þættirnir Sex and the City nutu mikilla vinsælda.
Þættirnir Sex and the City nutu mikilla vinsælda. AFP

Að undanförnu hafði Garson starfað við afleggjara Sex and the City, þættina And Just Like That, að sögn BBC. 

Garson var einnig þekktur fyrir hlutverk sitt sem svikahrappurinn Mozzie í sjónvarpsþáttunum White Collar.

Ekki hefur verið greint frá dánarorsök hans.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að gera einhverjar ráðstafanir varðandi heilsu þína og ekki draga það of lengi. Það er í góðu lagi að gera lítið sem ekkert í einhvern tíma.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir