Hljómsveitin Greifarnir og plötusnúðurinn og útvarpsmaðurinn Siggi Hlö ætla að halda heljarinnar veislu annað kvöld, laugardagskvöld, á Spot í Kópavogi. Veislan hefði átt að fara fram um Verslunarmannahelgina en vegna sóttvarnarráðstafana var henni frestað.
Þetta er í ellefta skipti á síðustu tólf árum sem þessi hátíð er haldin og er hún orðin fastur liður í lífi margra. Greifarnir og Siggi Hlö halda uppi stuðinu frá klukkan 21 en fyrst verður brekkusöngur í brekkunni fyrir neðan Spot.
Brekkusöngurinn hefst klukkan 20 og er aðgangur ókeypis. Ef veður verður leiðinlegt verður söngurinn færður inn. Til að gestir geti haldið fjarlægðarmörk verður takmarkaður fjöldi miða í boði á ballið og aðeins 400 mega koma saman í brekkusöngnum.