Streymisveitan Netflix hækkar verð á venjulegri áskrift [e. standard] og úrvalsáskrift frá og með deginum í dag. Er um að ræða fyrstu verðhækkun fyrirtækisins síðan árið 2019. Verð á grunnáskrift [e. basic] mun ekki hækka.
Verð fyrir grunnáskrift mun því haldast í 7,99 evrum mánaðarlega, eða því sem nemur um 1.193 íslenskum krónum. Verð á venjulegri áskrift hækkar úr 11,99 evrum í 12,99 eða úr því sem nemur um 1.790 krónum í um 1.940 krónur. Þá hækkar verð á úrvalsáskrift um tvær evrur, eða úr 15,99 evrum í 17,99 evrur og verður því um 2.686 krónur í stað 2.387 króna áður.
Í tilkynningu frá Netflix segir að streymisveitan breyti verði sínum við og við til þess að „endurspegla umtalsverðar fjárfestingar“ sem streymisveitan hefur gert í nýjum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
„Við munum halda áfram að auka fjölbreytileika úrvalsins hjá okkur. Grunnaðildin okkar mun áfram vera á sama verði og viljum við með því tryggja að sem flestir geti notið efnisins sem við bjóðum upp á.“