Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur nú keypt eignarhlut eiginmanns síns, fjöllistamannsins Kanyes Wests, í húsi þeirra í Hidden Hills í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Samkvæmt skjölum sem People hefur undir höndum voru kaupin afgreidd 12. október síðastliðinn. Kardashian og West standa nú í skilnaði en hún sótti um skilnað við hann fyrr á þessu ári.
Kardashian og West hafa rekið hvort vörumerkið fyrir sig undanfarin en áttu þó nokkrar sameiginlegar eignir, eins og húsið í Hidden Hills og búgarð í Wyoming.
Kardashian greiddi West 23 milljónir bandaríkjadala fyrir hans hlut í húsinu, þar af eru þrjár milljónir fyrir innbúið.
Hjónin keyptu húsið saman árið 2014 og stóðu í framkvæmdum á því í nokkur ár. Þau fluttu inn í húsið í desember 2017.