Áfrjýjunardómstóll á Manhattan hefur komist að þeirri niðurstöðu að Grace Hightower, fyrrverandi eiginkona leikarans Robert De Niro, á ekki rétt á helmingi launa De Niro.
Hightower hafði farið fram á helming tekna hans samkvæmt kaupmála sem þau gerðu árið 2004. Kaupmálinn kvað á um að eignum þeirra yrði skipt til helminga við skilnaðinn. De Niro mótmælti kröfu hennar og sagðist ekki hafa efni á að fjármagna lífstíl hennar.
De Niro sótti um skilnað við Hightower árið 2018 eftir 21 árs hjónaband. Hann hefur greitt henni framfærslueyri síðan þá en skilnaðurinn er ekki enn genginn formlega í gegn.
Þau hafa deilt um framfærslueyrinn allt frá því hann sótti um skilnað. Á lægra dómsstigi komst dómari einnig að sömu niðurstöðu og áfrýjunardómstóll, að Hightower ætti ekki rétt á helmingi launa hans.
De Niro fór fram á að greiða henni 1 milljón bandaríkjadala í framfærslueyri á ári þar til hún annað hvort giftist aftur, eða annað þeirra fellur frá.