Framleiða hönnun Gunnars heiðursverðlaunahafa

Dæmi um hönnun Gunnars.
Dæmi um hönnun Gunnars. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska hönnunarmerkið FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands í gær, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá merkinu en þar segir einnig að FÓLK muni þróa vörur Gunnars til endurútgáfu í samstarfi við Gunnar og fjölskyldu með sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi.

Eitt af stóru nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu

Gunnar Magnússon þekkja margir Íslendingar sem eitt af stóru nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu. Hönnun Gunnars vakti mikla athygli á erlendri grundu og vann hann í samstarfi við nokkra af fremstu hönnuðum Dana eins og Borge Mogensen auk þess að ná góðum árangri í alþjóðlegum hönnunarsamkeppnum á sjöunda áratug síðustu aldar.

Gunnar Magnússon.
Gunnar Magnússon. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Hann snéri með fjölskylduna aftur til Íslands árið 1964 þar sem hann stofnaði eigin teiknistofu og vann í fjóra áratugi að fjölmörgum verkefnum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, bæði hlutum og stærri verkefnum til dæmis fyrir Hótel Holt, Kennaraháskólann, Alþingi og banka.

„Það er til marks um gæði hönnunar Gunnars hvað hún stenst vel tímans tönn. Hún er skýrt framlag Íslendinga til Norrænnar hönnunarhefðar síðustu aldar sem nýtur enn í dag mikillar hylli á heimsvísu.

Það er því mjög spennandi að fá tækfæri til að endurútgefa hana í samræmi við okkar áherslur um sjálfbærni og hringrás hráefna ” segir Ragna Sara, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs,“ í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup