Jóhanna Guðrún gefur út lagið Ætla ekki að eyða þeim ein í dag. Lag og texta samdi Ásgeir Orri Ásgeirsson en hann sá einnig um upptökustjórn.
Jóhanna gaf út plötuna Jól með Jóhönnu í nóvember á síðasta ári og naut hún töluverðra vinsælda. Á plötunni eru 10 lög. Fimm þeirra eru frumsamin og fimm tökulög. Tveir gestasöngvarar eru á plötunni, þeir Sverrir Bergmann og Eyþór Ingi Gunnarsson.
Á plötunni er lagið Löngu liðnir dagar eftir Jón Jónsson en textann samdi Einar Lövdahl Gunnlaugsson.
Þá samdi Bubbi Morthens eitt lag á plötunni og Gunnar Þórðarson eitt. Auk þess inniheldur platan útgáfu Jóhönnu á laginu Vetrarsól eftir Gunnar.