Tónleikum Bocelli líklega frestað

Tónleikum Andrea Bocelli verður að öllum líkindum frestað.
Tónleikum Andrea Bocelli verður að öllum líkindum frestað.

Stórtónleikum hins ítalska Bocelli sem fram áttu að fara í Kórnum í Kópavogi hinn 27. nóvember næstkomandi verður að öllum líkindum frestað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sena Live.

Í tilkynningunni segir að miðað við ákvarðanir stjórnvalda sem greint var frá í dag þurfi að öllum líkindum að fresta tónleikum Bocelli. „Ekki er hægt að sjá að miðað við þær hömlur sem voru kynntar sé gerlegt að halda tónleikana. Þetta er mjög sorglegt fyrir allan viðburðageirann og um gríðarlegt tjón að ræða þar sem aðeins tvær vikur eru í tónleikana,“ segir í tilkynningunni. 

Stjórnvöld tilkynntu um 50 manna samkomutakmarkanir en þó verður leyfilegt að halda viðburði fyrir allt að 500 manns þar sem krafist verður hraðprófa.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þrá eftir fullkomnun og óraunsæjar áætlanir eiga hug tvíburans allan um þessar mundir. Og það sem meira er, þetta er ekkert mál fyrir þig! Oftast viltu nefnilega það sama.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
5
Birgitta H. Halldórsdóttir