Gefur út sykursætt jólalag

Rakel Pálsdóttir flytur lagið Jólaveröld vaknar.
Rakel Pálsdóttir flytur lagið Jólaveröld vaknar.

Jólaveröld vaknar er nýtt jólalag eftir Gunnar Inga Guðmundsson og Nínu Richter, í flutningi Rakelar Pálsdóttur. Lagið kom út á miðnætti aðfaranótt 15. nóvember. Texti lagsins fjallar um sigur ljóssins yfir myrkrinu á þessum fallega árstíma, og ætti því að geta snert hátíðlega taug í öllum, óháð jólahefðum.

Lagið er ljúft og sykursætt, en tenórsaxófónleikur Jens Hanssonar úr Sálinni hans Jóns míns rammar tónlistina inn á sjarmerandi máta sem kallast jafnvel á við vinsælustu ítalsk-ættuðu jólasmelli landans frá tíunda áratugnum.

Flytjandi lagsins, Rakel Pálsdóttir lærði söng við FÍH. Hún tók þátt í söngvakeppni sjónvarpsins 2017 og 2018.

Gunnar Ingi Guðmundsson, höfundur lagsins, lærði lagasmíðar við tónlistarskólann Berklee college of music í Boston. Hann hefur samið lög fyrir Ragnheiði Gröndal, Sjonna Brink, Skítamóral og Arnar Dór, auk þess sem hann átti þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2003.

Nína Richter er textasmiður og kynningarfulltrúi. Hún hefur samið texta fyrir fjölda listamanna, þar á meðal Jóhönnu Guðrúnu, Hönnu Míu, Eyþór Inga og Lay Low, til dæmis smellinn Aftur heim til þín frá árinu 2019, og jólalag Eyþórs Inga, Desemberljóð, frá 2011.

„Lagið var samið í desember 2020 og tók það stóran hluta af þessu ári að full klára lagið hvað varðar útsetningu og raddsetningu hljóma, auk laglínu. Það hefur reynst mér best að semja bara mjög lítið í einu“, segir Gunnar. „Ég sendi Rakel lítið demo af laginu og var hún strax til í þetta.“

Upptökur fóru svo fram í september á þessu ári. „Við fórum svo í studíó Bambus til Stefáns Arnar Gunnlaugssonar og tókum upp grunn sem við byggðum ofan á og útkoman er létt jóla-popp lag.“

Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk studio sá um masteringu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Þú átt á hættu að vera misskilinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Þú átt á hættu að vera misskilinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar