Alec Baldwin segist ekki hafa skotið af byssu sem varð kvikmyndatökumanninum Halyna Hutchins að bana á tökustað kvikmyndarinnar Rust í Október.
Hutchins lést og leikstjórinn Joel Souza slasaðist þegar skotið hljóp af byssunni sem Baldwin hélt á. Voru þau við æfingar þegar atvikið átti sér stað.
Í kynningarmyndskeiði fréttastofu ABC, fyrir fyrsta viðtal við leikarann frá því atvikið varð, biður þáttastjórnandinn George Stephanopoulos Baldwin um að staðfesta að það hafi ekki verið í handriti myndarinnar að skotið væri af byssunni.
„Það var ekki skotið úr byssunni. Ég skaut ekki af byssunni,“ segir Baldwin.
Stephanopoulos segist hafa tekið mörg þúsund viðtöl á sínum 20 ára starfsferli en hann segir viðtalið við Baldwin vera það ákafasta sem hann hafi upplifað.
Í kæru gegn leikaranum er það fullyrt að handrit kvikmyndarinnar Rust hafi ekki krafist þess að hann myndi skjóta af byssu. Mamie Mitchell, umsjónarkona handritsins, höfðar málið á hendur Baldwin og var það hún sem hringi í lögreglu eftir atvikið.
„Það var ekkert í handritinu sem kallaði á að Baldwin eða nokkur annar skyti úr byssunni,“ sagði Mitchell.
Lögmaður Mitchell hefur sakað Baldwin um að hafa spilað „rússneska rúllettu“ þegar hann skaut af byssunni án þess að kanna hvort hún væri hlaðin.