Fimmtán bækur tilnefndar

Hópur tilnefndra í ár.
Hópur tilnefndra í ár. mbl.is/Árni Sæberg

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021 voru kynntar í 33. sinn við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum nú á sjötta tímanum. Tilnefnt er í flokki fræðibóka og rita almenns efnis, barna- og ungmennabóka og fagurbókmennta, en fimm bækur eru tilnefndar í hverjum flokki.

Formenn dómnefndanna þriggja munu koma saman ásamt Gísla Sigurðssyni, sem er forsetaskipaður formaður, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunin verða afhent af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, á á Bessastöðum á nýju ári.

Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda kostar. Verðlaununum er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs.

Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

  • Guðrún Ása Grímsdóttir fyrir Sturlunga saga eða Íslendinga sagan mikla I-III sem Hið íslenzka fornritafélag gefur út. „Sturlunga er samtímaheimild um örlagaríka ófriðartíma í sögu Íslands (1117-1264). Skinnhandritin tvö frá 14. öld eru skert og því er til viðbótar stuðst við yngri eftirrit í nýrri útgáfu Sturlungu sem Guðrún Ása Grímsdóttir hefur séð um. Vandvirkni og fræðileg úttekt hennar gerir lesendum nútímans unnt að njóta hins forna rits í hvívetna. Sagnasafnið Sturlunga inniheldur m.a. einn fjársjóða 13. aldar sem er Íslendinga saga Sturlu Þórðarsonar. Fróðleg og spennandi lesning.“
  • Kristjana Vigdís Ingvadóttir fyrr Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu : Um notkun dönsku og erlend áhrif á íslensku sem Sögufélag gefur út. „Höfundur leitar svara við nokkrum spurningum, m.a. hversu víðtæk var notkun dönskunnar á 18. og 19. öld á Íslandi, hvar bar hana helst niður og hvers vegna ekki var skipt yfir í dönsku eins og rektor einn lagði til? Höfundur setur frumrannsókn sína í samhengi við fyrri rannsóknir fræðimanna á einstaklega skipulegan og ferskan hátt. Virðing Dana fyrir menningararfi Íslendinga kemur ef til vill einna helst á óvart. Í lok bókar spyrðir höfundur áhyggjum fyrri alda varðandi íslenskt mál saman við þær sem tilheyra deginum í dag. Hressandi lesning.“
  • Sigrún Helgadóttir fyrir Sigurður Þórarinsson : Mynd af manni I-II sem Náttúruminjasafn Íslandsgefur út. „Allt við þetta mikla ritverk hrífur, efnistök við ritun sögu Sigurðar Þórarinssonar og sjálft bókverkið, sem er markvisst og fagurlega myndskreytt. Rannsóknir vítt og breitt um landið, eldgos, jöklar, jarðlög, náttúruvernd, söngtextar og önnur áhugamál vísindamannsins sindra á hverri blaðsíðu.“
  • Snorri Baldursson fyrir Vatnajökulsþjóðgarður: Gersemi á heimsvísu sem JPV útgáfa gefur út. „Lesandinn verður margs fróðari um jökla- og jarðfræði, lífríki og mikilfenglegar náttúruminjar svæðisins og verndun þess. Megintexti, kort, skýringarmyndir og ljósmyndir gefa margbreytilega mynd af viðfangsefninu. Höfundur leiðir lesandann í gegnum sérstöðu Vatnajökulsþjóðgarðs á skýran og fróðlegan hátt með fallegu myndefni. Hrífandi falleg bók.“
  • Þórunn Jarla Valdimarsdóttir fyrir Bærinn brennur : Síðasta aftakan á Íslandi sem JPV útgáfa gefur út. „Leiftrandi nærgætin frásögn upp úr bestu heimildum varpar nýju ljósi á aðdraganda og eftirmál hryllilegra atburða er gerðust í byrjun 19. aldar. „Mörg er angistin í nærmynd þessarar sögu“ lýsir vel upplifun við lestur bókarinnar. Lesandinn fær að fylgja höfundi um heimildir og finnur sig fljótt uggandi við túnfótinn.“

Dómnefnd skipuðu Ingi Bogi Bogason, Katrín Ólöf Einarsdóttir, og Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, sem var formaður nefndarinnar.

Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka:

  • Arndís Þórarinsdóttir fyrir Bál tímans : Örlagasaga Möðruvallabókar í sjö hundruð ár sem Mál og menning gefur út. „Óvæntur sögumaður tekur lesanda með í fróðlegt ferðalag. Myndir gæða bókina miklu lífi og auka lestraránægjuna. Bókin segir frá helsta fjársjóði íslenskra bókmennta á nýstárlegan hátt og kynnir handritin fyrir ungum lesendum.“
  • Guðlaug Jónsdóttir og Hlíf Una Bárudóttir myndhöfundur fyrir Í huganum heim sem Guðlaug Jónsdóttir og Karl K. Ásgeirsson gefa út. „Hugljúf, raunsæ og hversdagsleg frásögn af sveitalífi fyrri tíma. Gullfallegar myndir prýða frumraun höfundar og gera söguna ljóslifandi þannig að nánast megi bragða á matnum eða ganga inn í herbergi og leika sér.“
  • Jakob Ómarsson fyrir Ferðalagið : styrkleikabók sem Af öllu hjarta gefur úr. „Bókin er skemmtileg lesning og hvetur til aukins tilfinningaþroska. Aukaefni fylgir bókinni sem útskýrir efni hennar og nýtist við lesturinn. Framsetning bókarinnar gerir hana að einstakri frumraun.“
  • Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir myndhöfundur fyrir Reykjavík barnanna sem Iðunn gefur út. „Bókin fetar troðnar slóðir, sögusviðið er stórt og mikið og spannar fjölda ára. Fallegar myndskreytingar gera bókina aðgengilega lesendum á öllum aldri svo úr verður fræðandi og skemmtileg heimild um höfuðborgina okkar.“
  • Þórunn Rakel Gylfadóttir fyrir Akam, ég og Annika sem Angústúra gefur út. „Bókin er margræð þroskasaga um margbreytileika mannlífsins og erfiðleika sem fylgja því að vaxa úr grasi. Bókin kemur inn á mörg samfélagsleg málefni og vekur lesendur til umhugsunar um hvort við viljum grípa til aðgerða eða vera hlutlaus áhorfandi. Frábær frumraun höfundar sem verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni.“

Dómnefnd skipuðu Stefán Rafn Stefánsson, Vignir Árnason og Ragna Gestsdóttir, sem var formaður nefndarinnar.

Tilnefningar í flokki fagurbókmennta

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka:

  • Arnaldur Indriðason fyrir Sigurverkið sem Vaka Helgafell gefur út. „Höfundur slær hér nýjan tón frá fyrri verkum með sögulegri skáldsögu þar sem persónur úr íslenskum og dönskum veruleika fyrri alda leiða söguna áfram. Harmræn örlagasaga, skrifuð af viðkvæmni og virðingu fyrir sögupersónunum, í fallegum og grípandi texta sem vekur samkennd og sterkar tilfinningar lesenda.“
  • Guðni Elísson fyrir Ljósgildran sem Lesstofan gefur út. „Marglaga og margslungið skáldverk sem er allt í senn, sársaukafullt tregaljóð, skúrkasaga, samtímasaga, ádeila á verðmætamat samfélagsins og karnivalísk afbygging þar sem furðuverur varpa ljósi á valdakerfi samtímans. Úthugsuð uppbygging sem er reglulega sprengd upp - þegar textinn flæðir yfir mörk alls þess sem hingað til hefur skilgreint skáldsögur. Tímamótaverk þar sem bókstaflega allt er undir.“
  • Hallgrímur Helgason fyrir Sextíu kíló af kjaftshöggum sem JPV útgáfa gefur út. „Styrkleikar höfundar mætast í glitrandi og kjarnyrtri veröld síldarplansins, þar sem fyrstu skref þjóðar úr torfkofunum speglast í þrá aðalsöguhetjunnar eftir betra lífi og sjálfstæði. Síldarvals þar sem húmor og harmur koma saman í miskunnarlausri framrás tímans. Líður alls ekki fyrir að vera sjálfstætt framhald verðlaunaverks, heldur stendur fullkomlega á eigin fótum.“
  • Kamilla Einarsdóttir fyrir Tilfinningar eru fyrir aumingja sem Veröld gefur út. „Leit hinnar femínísku andhetju að sjálfsmynd, í misvondum ástarsamböndum, ýmsum hlutverkum í vinahópnum, á botni bjórflösku og í þungarokkshljómsveit snemm miðaldra skólafélaga sem kunna ekki á hljóðfæri. Sterk samtímasaga þar sem ískaldri kaldhæðni og depurð er fléttað saman í hressilegum texta, sem er skrifaður af viðkvæmni og væntumþykju.“
  • Svikaskáld: Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir fyrir Olía sem Mál og menning gefur út „Hressandi frásögn af uppreisn sex kvenna gegn hefðbundnum kynhlutverkum. Grípandi ádeila á viðjar vanans og tilraunir til að brjótast undan hlekkjum hugarfars feðraveldisins. Verkið er óvenjulegt að því leytinu að hér taka sex höfundar sig saman um að segja eina sögu frá sjónarhóli sex kvenna sem tengjast þó innbyrðis með mismiklum hætti. Þrátt fyrir mismunandi stíla og ólíkar raddir höfunda verður úr sterk samfelld frásögn þar sem samtímamálefni eru til umfjöllunar.“

Dómnefnd skipuðu Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Jón Svanur Jóhannsson og Andri Yrkill Valsson, sem var formaður nefndarinnar.

Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson ásamt verðlaunahöfum Íslensku …
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson ásamt verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020. Verðlaunin í fyrra hlutu Arndís Þórarinsdóttir, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, og Sumarliði R. Ísleifsson. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu vini þína ekki eggja þig til eyðslusemi. Hvort sem þú verður ástfanginn eða leikur þér að saklausu daðri verður líf þitt óvenju spennandi næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu vini þína ekki eggja þig til eyðslusemi. Hvort sem þú verður ástfanginn eða leikur þér að saklausu daðri verður líf þitt óvenju spennandi næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson