Brynjar Níelsson, nýráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra, segir í færslu á Facebook að nú þurfi hann að láta staðar numið á Facebook í bili. Segir hann nýja starfið vera ástæðuna fyrir því að hann þurfi að hætta á samfélagsmiðlinum.
Greint var frá því fyrr í dag að Brynjar hafi verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns. Hreinn Loftsson mun einnig vera aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
„Jæja, nú þarf ég að kveðja fésbókina tímabundið. Í nýju djobbi er ekki gert ráð fyrir ábyrgðarlausu glensi á samfélagsmiðlum,“ skrifar Brynjar í færslu sinni.
Brynjar hefur verið virkur á Facebook undanfarin ár og reglulega skrifar hann uppfærslur sem mörgum þykja skemmtilegar.