Helmingur fjölskyldna þeirra sem létust á tónleikum rapparans Travis Scott, Astroworld, hafa hafnað tilboði Scott um að hann greiði fyrir jarðarfarir fórnarlambanna.
Á vef BBC segir að meðal fjölskyldanna er fjölskylda Ezra Blount sem var níu ára þegar hann lést eftir að hafa troðist undir í öngþveiti á tónleikunum í Texas-ríki. Hann var yngstur þeirra tíu sem létust.
Scott bauðst til þess að greiða fyrir jarðarfarirnar í síðustu viku eftir að þó nokkrir stefndu honum. Lögmaður fjölskyldu hins 14 ára gamla John Hilgert sagði boð Scott vera „niðrandi og óviðeigandi“.
„Af öllu því sem þetta mál snýst um er það minnsta áhyggjuefnið,“ sagði lögmaðurinn varðandi jarðarfarakostnaðinn. „Fjölskyldan vill sjá breytingar og tryggja að þetta gerist aldrei aftur á tónleikum.“