21 hljómsveit og listamenn voru tilnefnd til Kraumsverðlaunanna í dag á degi íslenskrar tónlistar, meðal annars Birnir, Sóley, BSÍ, Skrattar, Bára Gísladóttir og Skúli Sverrisson.
Kraumsverðlaunin verða afhent í fjórtánda sinn síðar í þessum mánuði þar sem verðlaun verða veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Dómnefndin hlustaði á hátt í fjögur hundruð hljómplötur og útgáfur sem komu út hérlendis á árinu við val sitt. Hún mun nú velja sex breiðskífur af þeim sem nú hafa verið tilnefndar er hljóta munu Kraumsverðlaunin 2021.
Tilnefningarnar má sjá hér: