Tónlistarkonan Billie Eilish hefur verið dugleg við að koma aðdáendum sínum á óvart. Fyrr á þessu ári litaði hún hár sitt ljóst og skartaði hún ljósu lokkunum meðal annars á forsíðu Vogue. Nú hefur hún hins vegar tekið u-beygju og er búin að lita hár sitt dökkt.
Í upphafi ferils síns skartaði hin unga söngkona ýmsum hárlitum á borð við bláan og bleikan. Síðar litaði hún hár sitt svart með grænni rót og urðu það einkennislitir hennar. Nú hefur hún fært sig yfir í náttúrulegri tóna og er hár hennar fallega dökkbrúnt.
„Söknuðuð þið mín?“ skrifaði hin 19 ára gamla Eilish við mynd af sér á Instagram.