Allt ætlaði um koll að keyra í netheimum eftir að sjónvarpsþáttastjórnandinn Nick Cannon mætti í útsendingu í afar þröngum buxum.
Virkir í athugasemdum sögðu meðal annars:
„Ástæðan fyrir að Nick Cannon á svona mörg börn er að hann getur gert konu ólétta úr mikilli fjarlægð.“
Cannon, sem er 41 árs, á samtals sjö börn. Hann á til dæmis tíu ára tvíbura með söngkonunni Mariuh Carey. Svo eignaðist hann á dögunum barn með fyrirsætu aðeins nokkrum vikum eftir að hann eignaðist tvíbura með annarri konu.