Vanessa Bryant, ekkja körfuboltamannsins Kobe Bryant, segist lifa í miklum ótta eftir að eiginmaður hennar og dóttir, Gianna Bryant, fórust í þyrluslysi fyrir ári síðan.
Vanessa óttast það mjög að myndir sem fyrstu viðbragðsaðilar tóku á vettvangi slyssins fari í dreifingu á meðal almennings. Hefur Vanessa höfðað mál gegn Los Angeles-sýslu vegna myndanna en hún fullyrðir að lögregluþjónar og slökkviliðsmenn hafi tekið myndir á slysstað fyrir sig persónulega en ekki í rannsóknarlegum tilgangi. Samkvæmt frétt frá New York Post hefur það fengist staðfest að viðbragðsaðilar hafi verið að deila þeim með vinum og vandamönnum.
Myndirnar sem um ræðir sýna hræðilegar nærmyndir af líkum Kobe og Gianna Bryant, sem og öðrum farþegum þyrlunnar sem létu lífið. Sendi Vanessa sex blaðsíður af nýjum athugasemdum vegna málsins eftir að lögregluyfirvöld vísuðu kröfu hennar frá um að eitthvað meira þyrfti að eiga sér stað en að viðbragðsaðilum væri gert að eyða myndunum út úr símtækjum sínum.
„Ég mun aldrei losna við þá miklu angist sem fylgir þeirri tilhugusun um hvernig yfirvöld, sem eiga að vernda okkur, komu fram við Kobe og Gianna - svívirðileg vanvirðing,“ er haft eftir Vanessu. „Það er aðeins tvennt sem gæti gerst á meðan ég syrgi og lifi; annað hvort fara nærmyndir af líkum eiginmanns míns og dóttur um allt internetið eða að ég held áfram að lifa í ótta út í eilífðina við að það muni gerast,“ sagði hún í skýrslunni sem hún sendi frá sér.